Bloggsvæði Gunnu Óla

Velkomin(n) á bloggið mitt

02.10.2007 11:13:38 / gunnaola

Þegar lífið tekur UUUUUUUUU-beygjur

:^)Jæja,

Langt síðan síðast.  Við fórum sem sé að stækka við okkur svo várir yndislegu afleggjarar hefðu einhvern stað að búa í...... En viti menn! Magga var ekki fyrr komin heim en að hún keypti sér íbúð uppi í Seljahverfi...  Annars fer bara mjög vel um okkur gamla settið hérna suður á Völlunum. Höfum meiri háttar útsýni frá austri til vesturs og svalir sem taka heilt ættamót. Verst hvað hann hefur verið mikið í suðrænum bleytuáttum undanfarið. Liggur við að það hafi þurft að hafa allt múr og naglfast í verstu rokunum en ekkert hefur fokið ennþá svo vitað sé.

Nú svo er ég alveg að sættast við þennan SÚLUSTAÐ í kjallaranum, hvar bílinn minn á sér samanstað, enda fátæklegt úrval bílastæða fyrir framan þetta stóra hús.. Það eru tvær súlur öðru megin og þrjár hinu megin í bílastæðinu mínu. Minn yndislegi og langi vagn þarf því að þoka sér fram og til baka til að komast þar inn. Ekki bætir úr skál að ökumaðurinn er nærsýnn og með sjónskekkju og heldur að hann sé alltaf að lenda í miðjum súludansi, en er í rauninni 1/2 metra frá hættulegum dansi og árekstri við súlur þegar best lætur.  Ef ökumaður bakkar inn, sem er fljótlegra, kemst hann ekki út því þá er þriggja-súlufarganið fyrir hurðinni. Bjössi hefur gert það að hátíðlegri tillögu sinni að ég skipti um bíl og fái mér bara einn lítinn, eins og maðurinn viti ekki að minn giktarskrokkur þolir ekki það álag sem fellst í því að setjast NIÐUR í bíl. Verð sem sé að setjast upp í ekki niður....... Hemm


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 15:11:29 / gunnaola

Búin að kaupa nýja íbúð og selja líka................

Móðir mín sagði það oft að faðir sinn hafi líkast til verið kominn af sígaunum, svo oft skipti maðurinn og þar með fjölskyldan um heimilsfang. Einhverju sinni þegar mamma hafði verið send í sveit flutti famelían þrisvar sinnum á meðan. Reyndar fylgdi það sögunni að hann hafi ýmist verið ágætlega ríkur eða ekki átt bót fyrir rassss...Og einmitt þetta sumar ku hann hafa rankað við sér eftir ærlegt fylleri og að þá hafi runnið upp fyrir honum (og af honum líka) að það var ekkert eftir í íbúðinni nema það sem var rækilega múr-og nagfast, en það er önnur saga 8|Þannig blundar kannski einhver sígauni í mér, alla vega er þetta í þriðja sinn (OG ÞAÐ SÍÐASTA) á síðustu 7 árum sem ég flyt búrferlum, sem sé: Af Framnesvegi á Öldugötu í 101, af Öldugötu í Álfkonuhvarf í Kópavogi, og núna úr Álfkonuhvarfi á Drekavelli í Hafnarfirði. :haha: Á Framnesvegi áttum við heima í 23 ár og þar áður 2 ár uppi í Fellahverfi. Samtals höfum við Bjössi átt heima á 5 stöðum á 32 árum, sem þýðir að við höfum verið að meðaltali 6,4 ár á hverjum stað:$ en það þykir víst ekkert óeðlilegt eða hvað? Allt sem er yfir 5% er marktækt, segja þingmenn  - muniði tilsvör Árna Johnsen þegar hann var á móti hommunum og fréttamaður sagði við hann - en þeir eru kjósendur líka - hann sagði að það skipti ekki máli þeir væru innan skekkjumarka og hefðu því ekki áhrif á útkomu kosninga.8|  Eru Vestmannaeyjingar og og óskir þeirra um jarðgöng ekki líka innan þessarar sömu skekkjumarka? Svo maður vaði nú úr einu í annað:klikk:.

Jæja, áfram með flutninga: Nú stækkum við um eitt herbergi og færust væntanlega örlítið nær himnaríki líka, því við förum alla lið upp á 7 hæð, og það með þessu líka flotta útsýni af þessum líka stóru svölum.

 Í öll skipti sem ég hef flutt hef ég verið í tímahraki - nema núna, hef nógan tíma og hvað gerist þá? Jú ég nenni varla að standa í því að pakka þessa dagana:cry:  En sem sé - við ætlum að vera alveg flutt um næstu helgi8|

Jæja, nú er þessi blessuð Verslunarmannahelgi runnin upp - og allir í fríi nema verslunarmenn.:P

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 20:07:23 / gunnaola

Sagan af umskiptingnum og ódáminum Tryggva, - svokölluðum vini mínum

Það er bara enginn andsk. friður fyrir honum Tryggva, vini mínum og vinnufélaga:klikk:. Ekki nóg með að hann varð til þess að ég keypti mér rándýrt veiðihjól um daginn, gullslegið og hvaðeina , sem hann segir að ekki nokkur kjaftur eigi utan ég og svo Bjarni Ármanns og svoleiðis gaurar, sem eiga skít nóga peninga:!: Hann var sem sé sí suðandi um að ég færi með sér í veiðiferðir. Svo píndi hann mig til að kaupa veiðikortið líka, þannig að útgjöld mánaðarins verða seint jöfnuð!.

En nú er hann alveg farinn fram úr sjálfum sér, mann andskotinn:!: Ég er ekki fyrr búin að kaupa græjurnar og kortið að hann heimtar að ég fari með sér og öðrum vinnufélögum í fjallgöngur á þriðjudögum eftir vinnu, og man þá auðvitað ekkert eftir því að ég er algjör gigtarskjóða og þoli því ekki slíka ævintýramennsku:frown:

Öðru vísi mér áður brá, því fyrir örfáum misserum var heimur Tryggva bundinn af um 4 km. radius þ.e.a.s frá Nóatúni og niður á Lækjartorg. Sem sé algjört miðbæjar nörd. Hann fór allra sinna ferða fótgangandi, nema þegar ég eða aðrir vinnufélagar tóku að sér að keyra hann í ríkið sem er utan þessa radiusar, svo hann þyrfti nú ekki að bera bjórkassana á bakinu heim.8) Á gamalsaldri tók hann upp á því að taka bílpróf og kaupa sér bíl og síðan er hann orðinn óþolandi náttúru-unnandi sem engin friður er fyrir. Sem dæmi um það dreymir hann nú um að eignast óðal í sveit og liggur um þessar mundir yfir fasteignaauglýsingum!

Til þess að slá mig alveg út af laginu bíð ég þess í ofvæni að næst gerist hann ofsatrúar og gangi í Krossinn eða eitthvað viðlíka8|.

Daginn sem það gerist panta ég pláss á Kleppi, - fyrir okkur bæði.:klikk:

Hvílíkur ekkisens andsk. kross að eiga svona vini.8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:33:29 / gunnaola

KOMIN HEIM OG BÚIN AÐ FARA AUSTUR Í MINN YNDISLEGA POTT!

Jæja, mikið andsk.  fer illa í mig að fljúgja. :( Að ég tali nú ekki um að fara í tvær flugvélar sama daginn. Var bara eins og slitti þangað til í dag. Bjössi minn elskulegur var búin að taka svo voða vel til og átti meira að segja kaffi, en lítið meira var á boðstólnum. Fórum svo austur eftir hádegi á föstudaginn og það var bara meiriháttar. Allt að grænka, en svolítið kalt.:D

Geir er víst búin að bjóða Sollu uppí til sín. Ekki líst mér allskostar á. Þetta verður jafnvel hægri sinnaðri stjórn en sú fyrri.:klikk: Mark my words!

Á morgun mæti ég í vinnuna í fyrsta sinn í fjórar vikur. Hlakka bara til að hitta gengið á hælinu því arna, en stoppa stutt, því ég fer aftur í frí 4. júní og þá í 4 vikur.:lol: Maggs mín og afleggjararnir koma svo um næstu helgi. Líklega verða gaurarnir eitthvað hjá ömmu sinni og afa í júní mánuði því Maggs er að fara að vinna.:haha:

Þetta sumarfrí á sko að verða friðsælt, fengsælt og skemmtilegt:!: Ætla EKKI að eyða því í veikindi í kjölfar spítalavistar.:$ Nú á sko að komast í veiði og útilegur - TAKK:!:

 Ef eitthvað kemur í ljós í næstu skoðun, verður öllum aðgerðum frestað til haustsins - bara meika ekki rúmlegu á sumrin takk fyrir. 

Meira síðar.

Gólan 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 10:46:49 / gunnaola

Æ, Æ, Helvítis stjórnin hélt en með minnsta mun - Hverjir fara upp í til Geirs?

Jæja, þá er spennandi kosninganótt að baki. Óskhyggja mín um niðurstöðu reyndist kolröng, nema hvað Íhaldið varðar, þeir bættu við sig og fengu 25 menn eins og ég spáði, enda allt annað yfirbragð yfir Geir heldur en Dabba. Er þó ánægð með aukningu Vinstri Grænna, sérstaklega að Atli vinur minn Gísla skyldi ná svona góðu kjöri. :D

En hvað tekur við? Varla þorir Geir, því valið er auðvitað hans, að halda áfram með svona auman meirihluta, bara einn mann:!: Það er því bara tvennt í stöðunni:!: Annað hvort sængar Geir hjá Imbu Sollu Gísla eða Steingrími.8|  Eigi þarf að spyrja um mína afstöðu, hef alltaf verið spennt fyrir Nýsköpunarstjórn, sem var mjög góð stjórn á sínum tíma, og vona því, svona velferðarinnar vegna, að Geir velji Vinstri Græn fremur en Samfylkinguna.:klikk:

Annars er það markverðast við þessar kosningar að Framsókn komi ekki inn manni í Reykjavík og að formaðurinn hafi þar með ekki náð kjöri hvað þá frú Jónína Bjartmarz:!: Svo er svolítið skondið að Kiddi sleggja skyldi komast inn á síðustu atkvæðunum í NV og að varaformaður Frjálslyndra næði ekki kjöri.:S

Nú styttist óðum dvöl mín hér í DK. Magga er bara hress, þótt hún sé svolítið óþolinmóð yfir því að geta ekki tekið stökkið og hlaupið af krafti yfir hraðahindranir og svoleiðis, þar eru jú varla brekkur hvað þá fjöll eða firindi hér um slóðir. (Veit ekki hvaðan hún hefur þessa leikfimi áráttu, alla vega ekki frá mér). En þetta kemur allt hjá stelpuskottinu! Bjössi lifir á Sjáfstæðum þegar hann fær ekki matarboð, sem mér skylst að sé æði oft, því fólk vorkennir honum að þurfa að sjá um sjálfan sig:D Ef ég væri ein heima í fjórar vikur myndi enginn hafa þessar áhyggjur af mér. Ég yrði örugglega sjálf að stinga upp á að mér yrði boðið í mat. Svona er þetta bara. Jæja, yfir og út...........


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 14:58:44 / gunnaola

KOSIÐ I DAG - FÁUM VIÐ NÝJA STJÓRN?

Jæja, er hálf ömurlegur bloggari - en lengi skyldi manninn bæta!:D Er sem sé stödd í DK hjá einkababyinu, sem fór á dögunum í nýrnaaðgerð. Héðan er bara allt gott að frétta, Maggs öll að koma til.:haha: En að alvöru málsins!

Hér kemur mín spá um kosningaúrslit:!:

Íhaldið fær 25 menn

Framsókn 6 menn

Samfylkingin 17 menn

Vinstri-Græn 13 menn :haha:

Frjálslyndir 3 menn

ERGO = Stjórnin er þar með fallin:!:: klikk :: haha: :P

Eða það vona ég svo sannanlega:!:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 11:48:26 / gunnaola

Fallegt veður í dag og ekki spillti fyrir að skv. nýjustu könnun eru krata helv. orðin smærri en VG - ha ha

:lol: Vaknaði bara nokkuð hress í morgun þrátt fyrir þrálátt kvef sem hefur verið að plaga mig í þrjár vikur. :evil: Ekki spillti það fyrir gleðinni með fallegan dag að skv. könnunum eru kratagreyjin orðin minni en Vinstri Græn :haha: Kratarnir eru sem sé að verða eins og gamli Alþýðurflokkurinn á sæmilegum degi. Svo gat ég ekki betur séð en svokallaður Frjálslyndi flokkur og Framsókn væru að komast niður í fæðingarþyngd! Verst að íhaldið fær þetta fylgi til sín í staðinn.

Segið svo að það þurfi mikið til að gleðja eina giktarskjóðu - ha? :klikk:


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 15:53:32 / gunnaola

Í upphafi var orðið og orðið var ..... SJÚKDÓMAVÆÐING

:$ Jamm - ekki að standa mig vel.  Það kemur eiginlega ekki til af góðu. Þannig er að eftir að hann Daxi minn hefur verið að fara inn á hinar og þessar leikjasíður, krassaði heimilistölvan gjörsamlega af vírusum, flensum og öðrum ótilgreindum sjúkdómum. Farið var með gripinn til tölvulæknis, sem hreinsaði vel og vandlega alla kvilla og kom fyrir sóttvarnarkerfi fyrir litlar 20 þús. - en síðan get ég eiginlega ekkert notað hana!  Hún úrskurðar nánast allt flakk á tölvunni sem stór hættulegt fjallaklifur eða dyfingar og hleypir manni bara ekkert nema öryggið sé á oddinum. Þannig get ég ekki haldið við síðunni íu tölvufjandanum og MSN-ið er tabú, sem þýðir stóra símreikninga þegar maður á alla sína afleggjara í Baunverjalandi!

Meira um sjúkdóma (mína) eftir helgi.

:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 15:37:56 / gunnaola

JÓLA HVAÐ?

Jæja, ég er bara ekkert að standa mig betur en sumir. 8| Engar færslur síðan ég veit ekki hvað........

  :lol: Nú er hann Daxi minn PAX búin að vera í heimsókn hjá ömmu sín og afa, fer svo aftur heim á sunnudaginn. Við förum svo næsta fimmtudag 21. des. til Álaborgar að heimsækja afleggjarana okkar sem þar eru. Hlökkum mikið til að hitta blessuð blómin okkar..... Og að halda dansk - íslensk jól og áramót.  Skyldu þeir sprengja mikið á gamlársdag??? :klikk:

Meira síðar. Yfir og út......... ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 11:06:27 / gunnaola

SNJÓR meiri snjór meiri snjórinn - Þriðja helgin í röð sem það gerast vitlaus veður.

8|Undirin gerast skjótt. Fórum í matarboð hjá Geir og Ann á laugardagskvöldið og áttum notarlega kvöldstund. Á meðan tók að snjóa svo um munaði. Fór svo að við gáfumst upp á að reyna að hringja á bíl um hálf fimm um nóttina. Vaknaði kl. 8 og byrjaði að reyna að hringja á bíll. Alltaf á tali - það var ekki fyrr en kl. 10.00 á sunnudagsmorgun að við fengum loksins bíl enda allt á kafi í snjó. Fór svo austur fyrir fjall á fund á sunnudaginn og viti menn. ALAUTT. Það sem sé snjóaði bara í Reykjavík og nágrenni. Snjórinn náði varla upp í Lögbergsbrekku.  

:$ Skyldi GUÐ vera á mála hjá atvinnurekendum? - Mætti halda það fyrst það er bara vitlaust veður um helgar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 12:43:08 / gunnaola

Brrrrrrrrr hvað það er kalt í dag

Nú er sko kalt. Frost um 6 stig og blææææææææsssssssssss af norðan:cry:

Heyrði í Keiku minni í gærkvöldi. :lol:Erum byrjaðar að pæla í Ísl.-dönskum jólum í DK. Ætlum að reyna að vera svolítið ekónómískar - ekkert bruðl hjá blönku fólki takk. Verst að það má ekki fara með neitt gultlandi í handfarangri. Maltið verður því að pakkast voða vel í ferðatösku. Svo má ekki gleyma læri, hangikjöti, flatkökum, Ora grænum og NÓA konfekti annars verða bara engin jól.

Þegar ég var yfir vetur og þar með jól í DK fyrir langa langa löngu var ég hjá skólasystur minni í Hilleröd yfir jólin. Hef hvorki fyrr né síðar fengið fleiri gjafir, meira að segja hundurinn gaf mér eina og svo allar ömmur og afar og frændur og frænkur.  Allar voru þær voða sætar og fínar en að sama skapi ódýrar. Aðfangadagvkvöld var svolítið öðru vísi en maður átti að venjast. Sem sé kalt borð og ómælt öl og snaps. Húsbóndinn sem hélt að mér ákavítinu hafði aldrei séð það fyrr blandað í appelsíni, en mér var lífsins ómögulegt að koma því niður öðruvísi. Sem sé nú verða örlítið danskættuð jól - margar litlar gjafir,  öl og rödvin men ingen snaps tak.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 08:49:58 / gunnaola

Það sem það getur verið leiðinlegt veður hér á klakanum

Nú erum við búin að fá enn eina sprengjulægðina yfir okkur með tilheyrandi roki og rigningu. Verst að þessi verður bera orðið alltaf upp á helgi.

Fórum í sveitina og Bjössi setti upp nýja hlið í eldhúsinnréttinguna, kemur bara vel út. Þá er eftir að flísaleggja svolítið....  Skil núna af hverju sjónvarpsfesting er kölluð baula, því það baulaði í rörinu alla nóttina aðfararnótt sunnudagsins - ekki svefnfriður og eins geta verið stödd í fjósi...

Komum svo heim til að þrífa sameignina - djísus... ekki verið þrifið síðan um miðjan okt.!:!: Skil ekki hvað fólk er að hugsa - ætli það taki ekki heldur til inni hjá sér? Hringdi í formann húsfélagsins og spurði hvort ekki stæði til að ráða einhvern í þessi þrif - hann var stuttur í spuna og sagðist vera að safna fyrir píparanum, en come on - :klikk: þetta gengur ekki - allavega er ég hætt að þrifa skít fyrir a.m.k. 4 íbúðir. Þetta var í síðasta sinn:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 10:39:22 / gunnaola

Best að halda þessu áfram

Jæja, ekki dugar þessi djöfull.... Best að reyna að halda áfram með þessa síðu.... Svo maður sé ekki álitin alveg vonlaust keis.... Síðan síðast -- Auðvita fékk ég nýjan sjúkdóm - nema hvað!  Alveg ömurlega tegund af lungnabólgu sem sett var í mig á Landspítalanum í júlí - eyðilagði alveg sumarið fyrir mér  - Stór hættulegt að lenda á spítala!:evil: Jæja, bættum það upp með Pragferð í haust - meiriháttar góð ferð. :lol:

Við Bjössi fórum í jarðaför um helgina austur í Öræfi. Verið var að jarða hana Veigu gömlu elstu konu Íslands, 109 ára og 68 daga gömul þegar hún dó laugardaginn 28. okt. - Jarðsett var frá Hofskirkju sem er gömul torfkirkja og tekur svona 70 manns í sæti. Auðvita voru helmingi fleiri en athöfninni var útvarpað og sátum við Bjössi í okkar heita bíl fyrir utan. Bekkirnir eru nefnilega þröngir svona 20 cm. breiðir og pláss milli bekkja svona passlegt fyrir stærðina 1,50 sem hefur líklega verið meðalstærð Öræfinga þegar krikjan var byggð. Fengin að hafa ekki þurft að tilla mér þar með minn stóra skrokk og alla mína gikt... Á eftir var fjölmenn erfisdrykkja í Hofgarði og þar hitti maður ýmsa sem maður hefur ekki séð í 40 ár eða svo..... Drifum okkur svo í Tungurnar því það var spáð vitlausu veðri. :lol: Það varð nokkurt rok í Tungunum en ekkert á við það sem kom við strendurnar.

P.S. Hvernig kemur maður eiginlega myndum á þessa síðu?


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 14:27:31 / gunnaola

Sjúkdómavæðing Gunnólu........

8| Þar sem ég hef þann starfa að eiga samskipti við veikt fólk alla daga fer ekki hjá því að maður smitist af hinum og þessum sjúkdómum sem hrjáir kúnnana mína. Reyndar er ég komin með a.m.k. annan hvern sjúkdóm sem verið hefur á vegi mínum og hef ég því ákveðið að halda framvegis dagbók um þessa kvilla mína...

Fyrsta vers.... RISTRUFLANIR.  Ég er orðin alveg svakalega illa haldin af ristruflunum. Um það geta vinnufélagar og aðrir sem ég umgengst glöggt vitnað. Það bregst til dæmis ekki að þegar ég stend upp af stól tekur nokkrar sekúndur fyrir mig að rétta úr kútnum, svo illa yfirkomin af gigt er ég orðin.... Fyrir nú utan að ég get bara alls ekki rétt úr mér svo vel sé... Er að verða eins og S - eða jafnvel Z aftan frá eða 8 framan frá.... Sem sé það er ekki hægt að segja að það sé upp á mér tippið hvað þá meir .. Er það ekkiborðliggjandi að ég sé verulega illa haldin af ristruflunum hverskonar? :!:.


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Hinir og þessir......